Hvaða leyndarmál?
BókinPabbi Siddu og Hákons er ekki alveg eins og aðrir menn. Hann býr yfir hræðilegu leyndarmáli sem enginn má vita af. Það er leyndarmál fjölskyldunnar sem þau Sidda og Hákon reyna að fela fyrir umheiminum og ekki síst lögreglunni.
Þau eru umkringd litríkum persónum á borð við leynilögreglumanninn Vidda nikótín, íþróttabrjálæðinginn Ívar bang-bang, besta vininn Bjössa börger, hina óþolandi Bertu bleiku að ógleymdri mannætunni í Hlíðunum sem sumir trúa að sé einhvers staðar á kreiki.
Leyndarmálið hans pabba er hryllingsaga fyrir börn. Hún er um venjulega krakka sem glíma við óvenjulegt vandamál með ófyrirséðum málalokum. Um leið er þetta saga um raunverulegt vandamál sem margir krakkar búa við – togstreituna um hvenær eigi að þegja og hvenær eigi að segja frá.
