Politiken: Mannæta í fjölskyldunni – Djúpvitur saga frá Íslandi
Politiken, 06.06.2009, Bøger, S 12Djúpvitur saga frá Íslandi um aðstæður barna.
Við burðumst öll með stór og lítil fjölskylduvandamál. En fyrir íslensku systkinin Siddu og Hákon er það næstum óbærilegt – og mjög neyðarlegt. Pabbi þeirra er mannæta. Hann er furðulegur til að byrja með. Hann býr úti í garði. Hann ryður upp úr sér vondum bröndurum. Klórar sér á maganum meðan hann ropar. Fer á fundi hjá Cannibal Anonymous. Á meðan situr mamma úti í horni stofunnar og selur ýmislegt dót í gegnum síma. Þórarinn Leifsson hefur svo sannarlega ekki auðveldað sér lífið með svona fjölskyldu.
Leyndarmálið hans pabba er sýrð saga úr heimi lágmenningarinnar. Sögumaður á rætur sínar í í Roahl Dahl og okkar eiginn Ole Lund Kirkegaard. Upphaflega er hann útskrifaður úr listaháskóla og hefur unnið við tölvur.
Leyndarmálið hans pabba tekst á glaðlyndan hátt við fjölskyldumálin og hristir upp í þeim. Hversu lengi getur fjölskyldan til dæmis staðið saman þegar heimilisfaðirinn er nýbúinn að reyna að borða besta og eina vin barnanna? Áður var hann búinn að rífa í sig geðveikan kennara skólans á foreldrafundi, þó ekki væru margir leiðir yfir því. Smám saman nálgast yfirvaldið. Fulltrúinn er nikótínlitaður lögreglumaður. Leyndarmálið hans pabba er bráðum ekki leyndarmál lengur. Framundan eru réttarhöld og dómur. Vegna þess að sagan er sýrð þá endar hún með óvæntum hvelli.
Bókin hittir á streng kyrrlátrar sorgar og bágra lífskjara. Þótt hinn grallaralegi tónn svífi yfir vötnum allan tímann, á meðan hinir ótrúlegustu atburðir eiga sér stað, þá er maður ekki í vafa um að mannæta í fjölskyldunni er hið alvarlegasta mál. Verður vandamálið leyst? Það er víst ekki hægt að segja það! Þórarinn Leifsson hefur sjálfur myndskreytt bók sím með feiknarlegum krafti. Myndir og orð vinna vel saman. Það er er eins og teiknarinn skilji pabban örlítið betur en rithöfundurinn.
Þórarinn Leifsson heldur höfundaverki sínu áfram í slóð mannætunnar. Hann er að skrifa bók um íslenska fjámálahrunið.
steffen.larsen@pol.dk
-------------------------------------------
Steffen Larsen er einn virtasti barnabókarýnandi Dana. Hann er þekktur fyrir að hlífa engum. Hann er jafnframt snillingur í stíl.
Ég þýddi eftir bestu getu en frumgerðin er betri. Hana má lesa með því að smella á danska flaggið.
Steffen auglýsir að ég sé að fylgja mannætunni eftir með bók um fjármálahrunið sem er svolítið ónákvæmt en ansi gott fóður í þessa milljón Dani sem lesa Politiken. Takk Steffen.
| Attachment | Size |
|---|---|
| Politiken_Fars_store_hemmelighed.pdf | 105.12 KB |
