Bókamessan í Leipzig
Þórarinn Leifsson fer á bókmenntahátíðina í Leipzig föstudaginn þrettánda mars til að kynna Leyndarmálið Hans Pabba sem er að koma út í Þýskalandi undir nafninu Papas Geheimnis. Tveir dómar hafa nú þegar birst í þýskum dagblöðum, báðir mjög góðir. Í öðrum þeirra segir að aldrei áður hafi verið skrifuð bók sem þessi. Hægt er að ná í Þórarinn í síma +354 6593603 og í tölvupósti með netfanginu totil@totil.com á meðan á hátíðinni stendur.
Prógrammið er nokkurn veginn svona:
Þriðjudagurinn tíundi mars
Theatrium, Leipzig, Sachsen 04205
10:00 AM - Papas Geheimnis - Frumsýning
Leiklestur á sviði barnaleikhúss í Leipzig. Höfundur sefur út í Berlín á meðan.
Föstudagurinn þrettándi mars
Nordic Forum – á bókamessunni
13.30-14.00 Hall 4, Stand C304
Hartmut Mittelstädt (þýðandi), Þórarinn Leifsson (höfundur).
Dagskrá fyrir yngri lesendur
17:30 - 18:00 Lesebude 1, Hall 2, Stand G305 / H314
Hartmut Mittelstädt (þýðandi), Þórarinn Leifsson (höfundur).
naTo á föstudegi - Þetta er einhver lesklúbbur í miðbænum í Leipzig, örugglega mjög gaman.
20.15-20.45 Þórarinn Leifsson. Auður Jónsdóttir er gestur.

Comments