• Blog
  • Bókin
  • Grunaðir
  • Höfundur


  • Íslenska Íslenska
  • Deutsch Deutsch
  • Dansk Dansk
  • English English
  • Viðtal í Politiken
  • Mannætan fær frábæra dóma í Danmörku
  • Politiken: Mannæta í fjölskyldunni – Djúpvitur saga frá Íslandi
  • Leyndarmálið hans pabba á dönsku
  • Þýskt leikhús vinnur leikgerð upp úr bókinni
  • Íslensk mannæta á hvíta tjaldið
  • Bókamessan í Leipzig
  • Hræðileg bók og full af sannleika
  • Mannætan fær viðbjóðslega góðan dóm í þýsku dagblaði
  • Ætlar mannætan að gleypa Evrópu með húð og hári?
more

admin's blog

Viðtal í Politiken

Submitted by admin on Sat, 12/12/2009 - 12:56

PolitikenPolitikenHér má nálgast PDF með viðtalinu sem birtist í bókablaði Politiken. Þetta er opna í miðju bókablaðinu með vísun frá forsíðu. Og hér má lesa vefútgáfuna.

  • Add new comment
  • Dansk Dansk
  • English English
  • Deutsch Deutsch
  • 1 attachment

Mannætan fær frábæra dóma í Danmörku

Submitted by admin on Sun, 06/28/2009 - 23:56

Sýrð perla, hreinræktuð íslensk geðveiki, ánægjulegur lestur, vel framreitt, ótrúlega fyndin …

Svona hefur danski gagnrýnendakórinn sungið síðan að Leyndarmálið hans pabba eftir Þórarinn Leifsson kom út í Kaupmannahöfn 28. maí síðastliðinn.

  • Add new comment
  • Read more
  • Dansk Dansk
  • English English
  • Deutsch Deutsch

Politiken: Mannæta í fjölskyldunni – Djúpvitur saga frá Íslandi

Submitted by admin on Sun, 06/07/2009 - 15:28

Politiken, 06.06.2009, Bøger, S 12Politiken, 06.06.2009, Bøger, S 12Djúpvitur saga frá Íslandi um aðstæður barna.

> Lesið dóminn á Politiken.dk

Við burðumst öll með stór og lítil fjölskylduvandamál. En fyrir íslensku systkinin Siddu og Hákon er það næstum óbærilegt – og mjög neyðarlegt. Pabbi þeirra er mannæta. Hann er furðulegur til að byrja með. Hann býr úti í garði. Hann ryður upp úr sér vondum bröndurum. Klórar sér á maganum meðan hann ropar. Fer á fundi hjá Cannibal Anonymous. Á meðan situr mamma úti í horni stofunnar og selur ýmislegt dót í gegnum síma. Þórarinn Leifsson hefur svo sannarlega ekki auðveldað sér lífið með svona fjölskyldu.

  • Read more
  • Dansk Dansk
  • 1 attachment

Leyndarmálið hans pabba á dönsku

Submitted by admin on Fri, 05/29/2009 - 15:23

Í gær, nánar tiltekið þann 28. maí 2009, kom hin margrómaða mannætubarnabók Þórarinn Leifssonar, Leyndarmálið hans pabba, í bókabúðir í Danmörku. Fékk hún heitið Fars store hemmelighed á dönsku. Birgir Thor Møller þýddi og Forlagið Torgard gefur út.

Leyndarmálið hans pabba fékk góða dóma strax á útgáfudeginum. Barnabókasíðan Fortællingen.dk hrósar henni í hástert: 

„Leifsson leyfir sér með öðrum orðum að miðla alvöruþrungnum undirtón inn í galsann, án þess þó að ganga of langt. Tónninn verður hvorki prédikandi eða leiðinlegur (…) Þegar á allt er litið er Fars store hemmelighed skemmtilegur lestur með fullt af tilvísunum sem lesandinn getur fetað sig eftir. Þetta er fyrsta útgáfa íslenska rithöfundarins á dönsku — en vonandi ekki sú síðasta."

  • Add new comment
  • Read more
  • English English

Þýskt leikhús vinnur leikgerð upp úr bókinni

Submitted by admin on Thu, 03/19/2009 - 20:27

Um þjáningar mannætu: Ný og skemmtileg leikgerð barnaleikhússins Theatrium með frábærum leikurum.

LVZ/Leipziger-Volkszeitung, 11.03.2009, S. 13

Foto: Hannes FuhrmannFoto: Hannes FuhrmannFlestum börnum þykja foreldrar sínir pínlegir.
Pabbi Siddu og Jónasar er hinsvegar ekki bara öðruvísi (Nafnið á Hákoni breyttist í Jónas í meðförum leikhópssins) - hann burðast með skuggalegt leyndarmál  sem fjölskyldunni er gert að varðveita. Í leikritinu ”Leyndarmálið hans pabba“ eftir samnefndri bók hins íslenska barnabókahöfundar, Þórarins Leifssonar, er fjölskyldufaðirinn ekkert venjulegur, hann er mannæta.

Á daginn hrýtur hann á sófanum ( Það væri allt of hættulegt að láta hann vinna úti á meðal fólks) og um nætur ráfar hann um borgina í leit að bráð. Hversu lengi getur það gengið án áfalla? Hvað ef hann tekur upp á því að ráðast á sína eigin fjölskyldu? Hvern þarf eiginlega að vernda fyrir hverjum?

  • Add new comment
  • Read more
  • Deutsch Deutsch
  • English English
  • Dansk Dansk

Íslensk mannæta á hvíta tjaldið

Submitted by admin on Wed, 03/11/2009 - 04:00

Af Visir.is: „Ég er ekki alveg búinn að ákveða hvort þetta verði leikin mynd eða teiknimynd. Ég hallast frekar að því að þetta verði teiknimynd," segir Þórarinn Leifsson en hann, ásamt konu hans Auði Jónsdóttur, ætlar að skrifa kvikmyndahandrit upp úr bók Þórarins, Leyndarmálið hans pabba.

  • Add new comment
  • Read more
  • Dansk Dansk

Bókamessan í Leipzig

Submitted by admin on Wed, 03/04/2009 - 21:38

Þórarinn Leifsson fer á bókmenntahátíðina í Leipzig föstudaginn þrettánda mars til að kynna Leyndarmálið Hans Pabba sem er að koma út í Þýskalandi undir nafninu Papas Geheimnis. Tveir dómar hafa nú þegar birst í þýskum dagblöðum, báðir mjög góðir. Í öðrum þeirra segir að aldrei áður hafi verið skrifuð bók sem þessi. Hægt er að ná í Þórarinn í síma +354 6593603 og í tölvupósti með netfanginu totil@totil.com á meðan á hátíðinni stendur.

Prógrammið er nokkurn veginn svona:

Þriðjudagurinn tíundi mars
Theatrium, Leipzig, Sachsen 04205
10:00 AM - Papas Geheimnis - Frumsýning
Leiklestur á sviði barnaleikhúss í Leipzig. Höfundur sefur út í Berlín á meðan.

Föstudagurinn þrettándi mars
Nordic Forum – á bókamessunni
13.30-14.00 Hall 4, Stand C304
Hartmut Mittelstädt (þýðandi), Þórarinn Leifsson (höfundur).

Dagskrá fyrir yngri lesendur
17:30 - 18:00 Lesebude 1, Hall 2, Stand G305 / H314
Hartmut Mittelstädt (þýðandi), Þórarinn Leifsson (höfundur).

naTo á föstudegi - Þetta er einhver lesklúbbur í miðbænum í Leipzig, örugglega mjög gaman.
20.15-20.45 Þórarinn Leifsson. Auður Jónsdóttir er gestur.

Sjá www.nato-leipzig.de

  • Read more
  • Deutsch Deutsch
  • English English

Hræðileg bók og full af sannleika

Submitted by admin on Sun, 12/07/2008 - 23:17

Þessi grein eftir Hildi Lillendahl Viggósdóttur birtist upphaflega í tímaritinu Börn og menning 2008.

Fyrsta skáldsaga Þórarins Leifssonar, Leyndarmáið hans pabba, hefur hinn mjög svo lýsandi undirtitil bók handa börnum með foreldravandamál. Vísunin í sjálfshjálparbókabatteríið er augljós og langt í frá fáránleg. Fjöldinn allur af börnum ætti að geta fundið lausnir við ýmsum vandamálum í þessari þrususkemmtilegu bók. Sagan segir frá systkinum sem eiga við grafalvarlegt foreldravandamál að stríða og til þess að bjarga mannslífum þurfa þau að finna leið til að leysa vandamálið í eitt skipti fyrir öll. Pabbi þeirra sporðrennir nefnilega fólki í tíma og ótíma. Systkinin glíma við hverja áleitnu siðferðisspurninguna á fætur annarri í gegnum frásögnina og eins og gengur og gerist í bókmenntum fyrir börn ramba þau á rétta svarið við öllum spurningunum, og það sem meira er; yfirleitt í gegnum eigið hyggjuvit.

  • Add new comment
  • Read more

Mannætan fær viðbjóðslega góðan dóm í þýsku dagblaði

Submitted by admin on Thu, 10/16/2008 - 14:56


Þýska dagblaðið Sozialistische Tageszeitung fjallar ýtarlega um Leyndarmálið hans pabba eftir Þórarinn Leifsson i sérstöku aukablaði um bókahátíðina í Frankfurt. Bókin kemur út fyrir þýskumælandi markað í næstu viku. Blaðið segir meðal annars að þvílík bók hafi aldrei verið skrifuð áður, þetta sé ótrúleg og viðbjóðsleg hryllingssaga.

  • Add new comment
  • Read more
  • Deutsch Deutsch
  • English English

Ætlar mannætan að gleypa Evrópu með húð og hári?

Submitted by admin on Fri, 09/26/2008 - 15:25

Nú þegar örfáir dagar eru þangað til að bók Þórarins Leifssonar, Leyndarmálið hans pabba, kemur út hjá Leipziger Kinderbuchverlag og pantanir eru teknar að hrannast inn í þýskumælandi netverslanir, berast þær hörmulegu fréttir að Forlagið Torgard í Kaupmannahöfn hefur orðið mannætunni að bráð. Bókin kemur nefnilega út í Danmörku næsta haust.

  • Add new comment
  • Read more
  • English English
  • 1
  • 2
  • next ›
  • last »
Syndicate content

Hlekkir

  • Kaupa bók - Bóksala
  • Kaupa bók - Eymundsson
  • Kaupa bók - Forlagið
  • Skemmtilegt blogg
  • Vísindavefur - Meðvirkni
  • Doktor.is - Meðvirkni
  • Sögueyjan Ísland
© Thorarinn Leifsson / Forlagid | For publishing rigths contact ua@forlagid.is | Other info: totil@totil.com