Reply to comment
Ætlar mannætan að gleypa Evrópu með húð og hári?
Submitted by admin on Fri, 09/26/2008 - 15:25
Nú þegar örfáir dagar eru þangað til að bók Þórarins Leifssonar, Leyndarmálið hans pabba, kemur út hjá Leipziger Kinderbuchverlag og pantanir eru teknar að hrannast inn í þýskumælandi netverslanir, berast þær hörmulegu fréttir að Forlagið Torgard í Kaupmannahöfn hefur orðið mannætunni að bráð. Bókin kemur nefnilega út í Danmörku næsta haust.
Um leið og við samhryggjumst danska heimsveldinu innilega (þeir geta huggað sig við það að Forlagið Torgard er færeyskt
að nokkru leiti ) bendum við á uppfærða heimasíðu bókarinnar á íslensku, þýsku og ensku.
